Monday, May 16, 2011

Information...

Sælir færeyjarfarar. Jæja nú er allt að skella á og ferðin okkar sem búið er að ræða um síðan í fyrra að verða að veruleika.
Það eru nokkur atriði sem okkur í ferðanefndinni finnst þurfa að komast til skila.
Mæting er við Hof miðvikudaginn 18.maí kl 11:30 og lagt verður af stað austur kl 12:00.
Ef einhverjar spurningar eru eða frekari upplýsinga er óskað varðandi ferðina eða þá verða Gréta og Halldór í Hofi á 3 hæð milli kl 17:00 og 18:00 mánudaginn 16.maí.

  1. Skilaboð frá Alberto: Hann vill að börnin í byrjendasveit og grunnsveit séu með betri föt með sér til að vera í þegar þau spila á tónleikum og að það séu ekki auglýsingar á bolum eða peysum. Big bandið á að vera í svörtu. Allir að muna eftir nótum og hljóðfærum og því sem tilheyrir. Lögin sem byrjenda- og grunnsveit eiga að spila eru viva la vida, passing through, yellow submarine og Sá ég spóa - muna eftir nótum fyrir þessi lög. Muna eftir æfingu á Þriðjudag kl 16 Grunnsveit og kl. 19:00 hjá Big Bandi !
  2. Allur matur hefur verið ákveðinn og verður bæði eldað á staðnum og farið út að borða, eins fá börnin ávexti og nesti þegar ekki gefst kostur á öðru. þannig að foreldrar þurfa ekki að hafa áhyggjur af mat og ekki þarf að gera ráð fyrir gjaldeyri til kaupa á viðbótarmat. Fyrir brottför á að vera búið að gera upp greiðslu fyrir öllu.
  3. Á laugardagskvöldið fer Big bandið í veislu en byrjenda- og grunnsveit verða heima og haft (partý) / kvöldvaka fyrir þau. Hugmyndin var þá að gera kvöldið skemmtilegt með leikjum, spilum o.fl og ef börnin eru með skemmtiatriði þá væri það geggjað, endilega að hafa sem fjölbreyttast. Varðandi nammið þá fannst okkur best ef börnin stilltu því algjörlega í hóf en hefðu þá laugardaginn til að kaupa sér nammi/snakk til að hafa m.a. á kvöldvökunni. Því beinum við þeim tilmælum til ykkar foreldrar að ræða við börnin um nammikaupin.
  4. Gerð hafa verið drög af skiptingum í herbergi en með fyrirvara um breytingar. Ef einhverjar sérstakar óskir eru um herbergisfélaga þá endilega komið þeim ábendingum til fararstjóra í gegnum tölvupóst gretajul@gmail.com
  5. Á fimmtudaginn þegar við komum til Þórshafnar mun Big bandið spil á á tónleikum í Norræna húsinu, frítt er fyrir börnin í byrjenda- og grunnsveit en foreldrar þurfa að borga sig inn. Það er hverjum og einum frjálst að fara á þessa tónleika, fólk verður bara að meta það hvernig það er stemmt eftir ferðalagið. Hægt verður þá að kaupa miða við innganginn og kostar miðinn c.a. 1300,- ísl.krónur.
  6. Varðandi fatnað þá er mikilvægt að hafa aukaföt ofarlega í tösku (hafa t.d. buxur og peysu/bol í poka sem hægt væri að grípa til) og merkja föt barnanna (sérstaklega þeirra sem ekki eru með foreldra) þannig að allt komist til skila, það er í athugun hvort við hefðum aðgang að þvottavél ef eitthvað sérstakt kæmi uppá t.d. ef einhver kastaði upp og fengi í fötin sín eða þ.h.
  7. Einnig er vert að benda foreldrum á að gera tilheyrandi ráðstafanir varðandi bíl- og sjóveiki. Í apótekum er hægt að fá bönd sem sett eru á úlnliðina og eru til að minnka flökurleika almennt (hægt að nota bæði við bíl- og sjóveiki), það eru 2 í pakka. þau heita ACU-STRAP og kosta milli 1700 og 1800 kr alla veganna í Akureyrar apóteki.
  8. Hægt er að fá leigð rúmföt í gistiheimilinu og fylgja þá handklæði með, þeir sem kjósa að nota svefnpokana sína er bent á að hafa með sér lak (skemmtilegra að hafa það á dýnunni). Rúmfötin kosta um 1.500kr
  9. Börnum sem hafa ekki foreldra verður úthlutað tengilið og ef þurfa þykir geta börnin fengið aðstoð varðandi peningamál og slíkt hjá sínum tengilið. Hér fyrir neðan eru nöfnin á börnunum og tengiliðirnir með fyrirvara um breytingar.
  • Halldór verður með Almar og Edward
  • Villi verður með Benedikt Sig og Berg Sig
  • Jónína verður með Hall og Jón Ólaf
  • Gréta Júl verður með Írisi Birnu og Sigurlínu Rut
  • Harpa verður með Benedikt Fáfni
  • Kristjana Þóris verður með Erlu Guðrúnu


Svo vona ég bara að allir séu að verða ferðabúnir og tilbúnir í þessa ferð sem verður örugglega alveg frábær, alla veganna er það stefnan hjá okkur !!!

Í viðhengi eru drög af dagskránni í Færeyjum með fyrirvara um breytingar. Eins og sést þá verða fimmtudagurinn og föstudagurinn frekar þétt setnir en laugardagurinn er mikið til frjáls tími en við förum í göngutúr um nágrennið auk þess sem gert er ráð fyrir frjálsum tíma og möguleiki er á að fara í verslanir, sund, keilu ofl.

Bestu kveðjur frá okkur.

Gréta Júlíusd 6638793 gretajul@gmail.com
Alberto Carmona 8411428 alcarmonita@gmail.com

0 comments: