Wednesday, March 23, 2011

From Cuba


Kæru félagar í nútímabandi Akureyrar,
ég veit ekki hversu mikið Alberto hefur sagt ykkur fráveru minni hér,
en Kúba er ótrúlegasta landið sem ég hef ferðast til.


Við búum öll fjögur í heimavist listaháskólans ISA með fullt af öðrum stúdentum, aðallega frá suðurameriku, en líka frá eyjunum hér um kring eins og Jamaicu, Puerto Rico og Haiti og svo mörgum frá Angolu. Allir eru að læra tónlist, leiklist eða myndlist, sumir stefna a BA prófi, aðrir að meistaraprófi.

Hér á svæðinu er líka lístamenntaskólinn ENA, með sömu greinum, en fyrir yngri nemendur.

Anna og Urður læra afrókúbverskan dans bæði í ISA og einkatímum, og Urdur tekur aukadanstíma í ENA.

Áki er í ásláttarnámi hjá Emilio del Monte, einum frægasta konga- og timbales leikara landsins. Svo lærir hann líka á afrískar bata-trommur, þar sem er spilað á þrjár trommur í einu.

Ég er í sax-tæknitímum hjá Juan Almeida, prófesor í ISA og stjórnanda Habana sax kvintetts, og svo í jazznámi hjá Orlando Sanchez (Cubajazz).

Hér er ótrúlegt framboð af listviðburðum; Wynton Marsalis kom í skólan og hélt masterclass, Stefano di Batista (altsaxofon) var með tónleika og masterclass; við höfum farið á tónleika með píanistanum Chucho Valdez (sem er í guðatölu hér) og séð ýmsa meðlimi Irakere spila.

Ég hef spilað á tónleikum með blönduðu nemenda/kennarabandi skólans, troðið upp með hljómsveit í gjörningi með skúringakonunni frá Akureyri, komið fram i Fresa y Chocolate og spilað með kúbverskum trúbadúrum. Í dag fer ég á æfingu hja BigBandi ENA, að sjá hvað þau eru að gera, og í næstu viku vonast ég að geta spilað á æfingu Salsabandi í Vedado (Habana), amk. er búið að bjóða mér þangað.

Ég spila mikið með kúbverskri söngkonu sem semur sín eigin lög og spila undir á gitar; hún er í tónsmiðanámi, útlærður Obóleikari sinfóniúnnar og spilar nærri því jafn vel á blokkflautu og ég á saxann.

Það sem fólkið í skólanum hér getur finnst mér magnað; hún t.d. var tvo daga að skrifa píanóútdrátt 4. sinfoníunnar Beethovens, allir taka tíma í solfeó (og kunna þ.a.l, að syngja flestallar laglínur sem þeir fá) , píanónám er skylda fyrir alla nemendur og margir eru fáranlega góðirá að hljóðfæri þó það sé bara auka; flestir spila á hálfónyt og hundgömul hljóðfæri sem við á Íslandi myndum henda, kunningi minn t.d. sem spilar á trompet missti hljófæri sitt um daginn þar sem það lagðist hreinlega saman vegna málmþreytu,

Það er gaman að sjá hvað þið hafið spilað mikið og gengið vel, þegar maður er svona langt heiman frá er ekki laust við það að það fylli mann stolti að geta sýnt liðinu hér bandið heima fyrir á netinu og vita að hlutirnir þróast áfram.

Í heimsókn sinni sagði Wynton Marsalis að það að vera tonlistarmaður gæfi manni kost á að gleðjast yfir hljóðfærinu sínu á tvo vegu: fyrst þegar maður er að æfa sig og manni fer fram, og svo þegar maður getur notið framfaranna i samspili við aðra.

Orð að sönnu. Betsu kveðjur

3 comments:

Anonymous said...

Blessaður Wolli!

Gaman að heyra frá þér, vá hvað þetta hljómar allt ótrúlega spennandi og skemmtilegt. Ég get ekki beðið eftir að fara út sjálf, kannski maður taki bara stefnuna á Kúbu!

Búið að vera mjög skemmtilegt skólaár hérna heima, erum búin að spila mikið með big bandinu og erum svo að fara til Færeyja í lok maí.

Sjáumst hress og kát þegar þú kemur heim, bið að heilsa :)

Auf Wiedersehen
Sigurdís Sandra

Anonymous said...

Blessður Wolli!

Gaman að heyra frá þér, vá hvað þetta hljómar allt spennandi og skemmtilegt. Get ekki beðið eftir að fara út sjálf, kannski maður taki stefnuna á Kúbu!

Búið að vera mjög skemmtilegt skólaár hérna heima, erum búin að spila mikið í big bandinu og erum svo að fara til Færeyjar í lok maí.

Sjáumst hress og kát þegar þú kemur heim, bið að heilsa :)

Auf Wiedersehen
Sigurdís Sandra

Þorvaldur said...

Gleður mig að heyra hve vel gengur hjá fjölskyldunni! Þetta hljómar dýrðlega.

Bestu kveðjur og njótið verunnar,
Þorvaldur